Skilmálar
- Sæti eru tekin frá á netinu og greidd við komu, með posa eða reiðufé, nema skiptakort sé notað.
- Staðfesting á bókun er send með tölvupósti.
- Afbóka má hvenær sem er. Sé það gert 24 klst. eða meira fyrir gusuna fást skiptin aftur á kortið.
- Sé afbókað seinna fást skiptin ekki aftur, en sætið fer til næsta á biðlista.
- Ef við aflýsum gusu fara öll skipti aftur á kortið og þú færð að vita það í tölvupósti og SMS.
- Gjafabréf gilda í 365 daga frá kaupdegi.
- Hiti reynir á líkamann. Ef þú ert með undirliggjandi sjúkdóm eða ert barnshafandi skaltu spyrja lækni fyrst.
- Hlustaðu á líkamann og farðu út þegar þér hentar. Hver og einn ber ábyrgð á eigin heilsu.